bloggið hennar Bjarkar

17.02.2009 16:57:55 / bjork

Tíðindi...

Ég er komin með facebook:d Loksins fyrir Eddu mína..hehe;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2009 15:59:03 / bjork

Update...

Jæja smá fréttir...Hugi minn lenti í smá slysi í gær í skólanum...hann datt beint á andlitið með hendur í vösum og skrámaði á sér bæði nefið og efri vörina...hann fékk líka geðveikan skurð inná efri vörina og það losnuðu báðar framtennurnar í byltunni og svo fylgdi þessu vottur af heilahristingi:cry: litla dúllan mín:cry: hann er nú allur á batavegi samt...svo harður þessi litli nagli sko;) getur verið að tannræturnar deyji en það kemur í ljós með tímanum og verður tékkað aftur á því eftir 6 mánuði...þá þarft hann líklegast að fá gervitennur sem verða skrúfaðar upp....ég vona að tennurnar festist bara vel aftur og allt verði í lagi....ekki gaman að vera með gervitennur 8 ára gamall:$ kemur allt í ljós gott fólk. Hann er smátt og smátt að flytja sig yfir í hitt herbergið...Óli er búinn að taka allt útúr því nema sófann og tölvuna...svo ætlum við að mála og gera fínt áður en hann flytur inn...það er að segja ef Óli fær einhvern sjálfboðaliða til að hjálpa sér með rúmið hans Huga sem þarf að skrúfa allt í sundur og saman aftur....gæti tekið ansi marga bjóra og nokkra tíma sko:!: Kemur í ljós... litla krílið í bumbunni hefur það gott...nema hún/hann skallar alltaf á mér þvagblöðruna...frekar óþægilegt..hehe...settur dagur en ennþá 17 júlí og í dag er ég komin nákvæmlega 17 vikur og 4 daga...Vilhjálmur bannaði mér að vinna næstu tvær vikur sökum samdrátta í leginu en ekkert alvarlegt...bara búin að ofbjóða okkur aðeins með of mikilli vinnu...skólinn gengur...ennþá:$

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2009 21:55:13 / bjork

Halló.....

Jæja nú er fyrsta mæðraskoðun afstaðin og allt leit ofsalega vel út:) Ég var mjög ánægð og Hafdís er bara yndisleg sko:) Næsta mæðraskoðun er skipulögð 19 feb en ég má koma í hverri viku og hlusta á hjartsláttinn ef ég vil:) Í gær fór ég í sónar útá Skaga og það leit líka allt vel út þar...nema ég hitti Edward ekki Vilhjálm og var ekki nógu ánægð með það og svo seinkaði hann mér um 5 daga líka þannig að ég er þá komin 14 vikur og 2 daga í dag ekki 15 vikur eins og ég hélt...bömmer:s mér er svosem sama á meðan allt er í himnalagi þarna niðri. Settur dagur hjá mér er samsagt 17 júlí 2009:) Edward sagði að ég mætti vinna eins og ég treysti mér til þannig að það er allt í góðu líka...get samt ekki beðið eftir 19 vikna sónarnum sem er eftir ca mánuð.  Vinnan gengur helv..vel bara og ég er búin að vinna eins og crazy og tek allar vaktir sem mér eru boðnar...$$$$$$ drífa sig að borga skuldir áður en krílið kemur í heiminn svo við getum innréttað tölvuherbergið flott fyrir Huga og gert barnaherbergi úr Huga hverbergi. Hugi er búinn að samykkja það:) Hann vildi ekki að barnið fengi tölvuherbergið en hans herbergi var í lagi. Annars fannst honum bara sjálfsagt að barnið yrði bara með honum í herbergi...hann ætlar sko að passa litla systkinið sitt:d Dúllan..honum hlakkar svo til:haha:  Humm...skóli...Hvað er það?? Hef ekki haft mikinn tíma til að mæta í skólann en mætti þó í dag og ætla að reyna að mæta vel í þessari viku...þetta blessast allt saman:)



» 5 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 15:35:07 / bjork

Einkunnir...

Jæja þá er ég búin að fá einkunnirnar mínar:) og þær voru bara nokkuð góðar sko:haha:  Bókfærsla-10,  Utn-10, Dans-10, Danska-9, Félagsfræði-8 og Stærðfræði-7.  Ég er rosalega ánægð með einkunnirnar og nú er ég að fara að byrja í ensku 204,íslensku 204 ,félagsfræði 204 og Bókfærslu 204 á miðvikudaginn og svo verð ég að vinna á fullu með:) æðiæðiæði! Fyrsta vinnuhelgin er búin og gekk ágætlega og það er bara gott að vera farin að vinna aftur...ég var reyndar alveg soldið þreytt á kvöldin enda 12 tíma vaktir en þetta fór allt saman vel...fyrsta mæðraskoðun er á fimmtudaginn og svo á ég tíma í sónar á mán...vona að allt gangi vel þar.  Hugi fór á körfuboltamót á laugardaginn og gekk svona lala...honum langaði eiginlega bara frekar að fara í  bíó sem hann fékk svo eftir mótið með Evu og Steinunni frænkum sínum...geggjað gaman sko..... bæjó;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 16:44:17 / bjork

Vinna....

Jæja fólk...nú er ég að fara að vinna aftur...á Hyrnunni. Ég byrja á 12 tíma vöktum aðra hvora helgi og eitthvað á virkum dögum og svo bara kemur restin í ljós:) Svo verð ég í fjórum fögum í menntaskólanum með...íslensku,ensku,bókfærslu og félagsfræði. Nú á sko að taka á því...hehe;) ætla reyndar að reyna að fara varlega og ekki ofkeyra mig í þessu ástandi sem ég er;) nei nei þetta fer allt vel og ef þetta verður of mikið þá bara reyni ég að minnka vinnuna eða hætti...ætla allavega að sjá hvernig þetta gengur:) Á morgun er síðasti dagur annarinnar og svo fæ ég einkannirnar 15 held ég...held ég sé búin að ná öllu sko:haha: Jamm og já...hvað á ég að segja ykkur meira....Huga gengur bara vel í skólanum og svo er hann að æfa körfubolta....hann er að fara á körfuboltamót núna á laugardaginn. Já...jólin voru fín að vanda og við vorum hjá Evu og co á áramótunum...bara gaman sko. allavega hef ég ekki mikið að segja í bili þannig að ég sendi bara kveðju í bæinn;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 11:33:39 / bjork

Árið á enda runnið...

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 20:09:44 / bjork

Jólahátíðin gengin í garð...

Gleðileg jól

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 19:04:47 / bjork

Halló

Smá update hér... nú er skólinn að verða búinn og jólin að nálgast og allt í gúddí:) Ég á eftir að gera endalaust helling fyrir jólin og ég sé ekki fram á að ég nái að klára allt:s  Það gengur ljómandi vel í skólanum og ég held að ég sé bara aldeilis búin að ná öllu...:haha: ég fékk meira að segja 8,2 á stærðfræðiprófi um daginn og þá er sko mikið sagt...ekkert smá happy með það mar:haha: Á föstudaginn var slúttið í dansinum og við vorum með keppni á milli hópa í 100 áfanganum í dansi...það gekk allt að óskum og minn hópur lenti í 2 sæti... reyndar af 3 en samt ágætt:lol: Nú er bara eftir lokaverkefnið í UTN en það er stuttmynd sem við erum að gera, ég,Edda og Helena, lokaritgerðin og kynningin í dönsku,próf úr kjörbókinni í dönsku(sem ég er ekki búin að lesa8|),eitt próf í fél og eitt próf í stæ og eitthvað smá í bókfærslu og svo er önnin bara búin held ég 9 jan. Ég fer líklega ekki í skóla eftir áramót:( glatað sko8|  Jamm og já...veit ekki hvað ég get sagt ykkur meira.....allt í gangi sko;) allt svo frábært núna:haha:  þið vitið hvað ég meina;)  heyrðu ég held ég hafi bara ekkert að segja meira í bili...Bæjó:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 11:41:52 / bjork

Nýjar myndir

Búin að setja nýjar myndir inná Huga síðu og dýralandssíðuna....koma bráðum myndir inn hjá mér líka.......:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 20:33:34 / bjork

Lítil kríli komin í heiminn.

Mýsla eignaðist 5 litla brjálæðinga aðfaranótt laugardagsins. 2 gullfallegar stelpur og 3 stráka. önnur stelpan er brún með hvítan kvið og stjörnu í enninu og hin er dökkbrúnflekkótt...einn strákur er svartflekkóttur, annar er border collie litur og einn er brúnn með hvítan kvið og stjörnu. Fæðingin gekk vel fyrir utan að litli svartflekkótti strákurinn var eiginlega dáinn þegar hann kom og svarti strákurinn var ofsa stór og við þurftum að aðstoða hana við að koma honum út. Flestum hvolpunum heilsast vel nema litla brúna stelpan er svo lítil og aum að við þurfum að hjálpa henni að komast á spena...systkini hennar ýta henni alltaf í burtu og hún ræður ekkert við þau. Við náðum að bjarga litla lífvana stráknum með því að nudda í hann lífinu til að fá blóðrenslið af stað og láta dropa þurrmjólk ofan í hann og hann er búinn að vera í hitakassa þar til í dag...núna er hann farinn að anda nokkuð eðlilega og getur sogið mömmu sína með hjálp frá okkur. Þetta eru búnir að vera erfiðir dagar og við lítið búin að sofa... við vöktum náttla bæði alla nóttina með Mýslu og svo kl hálf sjö á laugardagsmorguninn lagði Óli sig í 2 tíma og svo skiptum við og ég lagði mig í 2 tíma og þannig er það búið að vera síðan þá. Höfum náttla ekkert mátt líta af litla lífvana stráknum...höfum þurft að halda honum við efnið og nudda hann á 10 mín fresti og gefa honum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 16:03:25 / bjork

Allt gott bara.....

Takk fyrir commentið Ingibjörg...gaman að sjá að einhver fylgist með og les bloggið mitt:haha: mér gengur alveg þokkalega í skólanum fyrir utan helv...stærðfræðina. Ég er búin að læra svona næstum á helv... makkann sko og þetta er bara allt að koma nema ég er alveg að gefast upp á stærðfræðinni...er jafnvel að spá í að færa mig niður um áfanga en er ekki alveg að tíma því sko8| nenni ekki að vera í stærðfræði forever sko:!::!:  annars er ofsalega gaman að vera komin í skóla aftur og núna loks eftir langan tíma finnst mér ég vera að gera eitthvað af viti í lífinu...eða sko svona fyrir sjálfa mig:$ ég er náttla fyrirmyndarmóðir og húsmóðir og náttla besta kona sem maður getur óskað sér..hehe:haha:GÆTI EKKI VERIÐ ÁNÆGÐARI MEÐ AÐ VERA LAUS ÚR HYRNUNNI:!::!::!: jamm..................................... við vorum að kaupa okkur nýtt sófasett..eða sko geggjaðan hornleðursófa sem undirtekur alla stofuna liggur við...og lazyboy...æði sko...allir að koma og skoða:!::!::!:  Huga gengur fínt í skólanum... allavega miðað við að vera ekki venjulegt barn sko...kraftaverkabarnið mitt...sérvitringur eins og mamma sín og pínu crazy eins og pabbi...;) Mýsla písl er komin á steypirinn og er sett núna um helgina eða strax eftir hana og Timmlingur er alveg að fríka út í nýja sófanum..hann elskar nýja sófan og er þar allan daginn sko. Leitir á næsta leyti og nóg að gera hjá okkur litlu fjölskyldunni:d

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 20:19:51 / bjork

Bull og vitleysa...

Nú er ég hætt í hyrnunni og er að fara að byrja í skólanum á fimmtudaginn. Fór í bæinn í dag að versla mér bækurnar fyrir skólann og er nokkuð klár í slaginn...á bara eftir að kaupa stílabækur og svoleiðis...veit bara ekki hvað ég þarf þannig að ég ætla að sjá til bara. Hlakkar soldið til en kvíður líka fyrir sko... geðveikt skrýtið að vera hætt í hyrnunni eftir 3 og hálft ár þar....hyrnan hefur eiginlega bara verið eins og mitt annað heimili síðustu ár og staffið eins og fjölskyldan manns bara...þetta kemur allt í ljós:)  píslin mín er aftur orðinn ólétt þrátt fyrir árangurslausar tilraunir til að halda parinu í sundur á fengitímanum...varð pínu slys og þau náðu að eðla sig einu sinni þannig að nú eigum við von á litlum skítalöbbum um miðjan september...það er náttla gaman af því en ég nenni bara ekki hvolpaveseni aftur og veit ekki hvernig hún höndlar það svona fljótt aftur...hún er allavega farin að láta á sjá en er obboslega hamingjusöm og falleg núna dúllan mín. held þetta sé fínt í bili...blogga kannski þegar ég er byrjuð í skólanum ef ég hef tíma;) PASSIÐI SVO AÐ TRÚA EKKI ALLRI VITLEYSUNNI SEM ÞIÐ HEYRIÐ NIÐRÍ BÆ:!::!::!:

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 15:04:21 / bjork

Nýjar myndir

Ég er búin að setja nokkur ný albúm inná myndasíðuna mína:haha:
Endilega kíkið á þær og skiljið svo eftir kvitt eða comment:!:

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 17:53:57 / bjork

Nóg að gerast...

Jæja þá er sumarið komið held ég bara...Hugi er útskrifaður úr fyrsta bekk og er núna í sumarskjólinu...nóg að gera þar...Íþróttaskólinn á hverjum degi og svo byrjar hann í listasmiðjum í næstu viku...hann er orðinn svooo stór og fullorðinn að ég veit þið trúið því ekki:!: kominn tími á annað barn held ég bara;) annars á ég stóran part í litlum tveggja mánaða gutta og læt það nægja í bili:)
Tindur er farinn á nýtt heimili og hefur það ofsalega gott bara...hann er mjög heppinn með eigendur og ég líka af því ég fæ að fylgjast með...erfitt að sleppa hendinni af þessum krílum:( Toppur er að verða jafn stór og mamma sín og ég er að reyna að telja í mig kjark til að láta hann frá mér...:s
Hrossin sleppa útí haga í næstu viku og ég get ekki beðið eftir að veita þeim frelsið sem ég veit að þau eru búin að bíða eftir í margar vikur...greyin að hanga inni í þessu veðri:(
Ég skellti mér í bústaðapartý um síðustu helgi með stelpunum í vinnunni...Ragnheiður var svo yndisleg að bjóða okkur til sín og hún grillaði sælkeramáltíð handa okkur og svo skelltum við okkur í pottinn á eftir...frábært kósý kvöld hjá okkur stelpunum sem við áttum sko heldur betur skilið eftir erfiða vinnuviku.
Ég fór í kvennareiðina síðustu helgi með mörgum skemmtilegum kellingum...við vorum alveg rúmlega 50 stelpur og það var mikið drukkið og haft gaman af:d ég byrjaði nú reyndar ekki að drekka almennilega fyrr en eftir miðnætti og þar af leiðandi kom ég frekar seint heim:$ það var náttla partý uppí hverfi eftir reiðina og svo var skellt sér á vinakaffi og haldið djamminu áfram og endað svo í partýi hjá henni Thelmu skutlu:) helvíti gaman bara en sunnudagurinn var ekkert sérstakur..hehe;)
Tvö ferðalög eru plönuð hjá okkur fjölskyldunni í sumar. Næstu helgi förum við með Sjöfn og co og Mána og Húna í Húsafell og svo ætlum við fyrstu helgina í júlí í bústað í heila viku í Ölfusborgum með þeim. Þetta verður æðislega gaman og ég vona svo heitt og innilega að það verði gott veður:!::!::!:
Í þessum töluðu orðum er Óli í karlrembureiðinni og ég vona að hann skemmti sér vel:haha:
Bless í bili fólk...seeya later;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 23:06:46 / bjork

Hæ...

Ég segi fínt....hef ákveðið að hætta í vinnunni minni....er ekkert að meika þetta lengur þarna...er búin að segja upp en á eftir að afhenda formlegt uppsagnarbréf...veit eiginlega ekkert hvað ég á af mér að gera sko8|
Hvað haldiði að sonur minn hafi komið með heim úr skólanum í dag??? litla krukku fulla af randaflugum...sko býflugum takk fyrir...og það lifandi8|  það voru reyndar 2 dauðar...örugglega þær sem stungu hann á veiðunum...8 stykki takk fyrir og ég var ekki ánægð með þennan glaðning get ég sagt ykkur...reyndar heppin að þetta voru ekki geitungar:$ þá væri sonur minn sennilega á sjúkrahúsi núna þar sem hann veiddi þær með berum höndum.
Hrossamennskan gengur frábærlega...erum komin með 7 stykki inn frá okkur sem er æðislegt...laus við allt tamningadrasl...nú getum við sko farið í ferðalög:haha: Ég skutlaði Voninni hans Huga vestur í dag og hún var mjög svo frelsinu fegin:) Núna ríður Hugi bara Mikka.
Síðasta helgi var æði...fórum í Akureyrartrip með Evu og Davíð...barnlaus,hundlaus,hrosslaus og alles bara. Þetta var frábær helgi og ýmislegt brallað fyrir norðan. Við fórum í sund,keilu,göngutúra,drukkum bjór,slöppuðum af,fórum í Kjarnaskóg,fengum okkur brynjuís,fórum út að borða á Bautanum og fórum á ball í Sjallanum...geggjað gaman sko...og ekki má gleyma verslunarferðinni góðu...hehe:haha:
Það var mikið étið,drukkið og haft gaman skal ég sko segja ykkur...eitt kvöldið fór í dvd gláp...þá vorum við líka orðin soldið þreytt...hehe... ég hitti Kötu í alveg 5 mín eða eitthvað...það var náttla bara nauðsynlegt að sjá hana aðeins fyrst maður var nú einu sinni á Akureyri...alltaf jafn gaman að hitta Kötu sína:haha: og líka á djamminu;)
Heyrðu held að þetta sé komið nóg í bili..hvolparnir dafna vel og við líka í sólinni og sumrinu8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
RSS tengill
Myndasíðan mín